Sveitarstjórnarfundur nr. 521

26.05.2025 00:00

Sveitarstjórnarfundur nr. 521

Mánudaginn 26. maí 2025, kom sveitarstjórn Grýtubakkahrepps saman til fundar á skrifstofu hreppsins að Túngötu 3 á Grenivík. Eftirtaldir sveitarstjórnarfulltrúar voru mættir; Gísli Gunnar Oddgeirsson, Þorgeir Rúnar Finnsson, Gunnar B. Pálsson, Inga María Sigurbjörnsdóttir og Sigrún Björnsdóttir sem sat fundinn í fjarveru Fjólu V. Stefánsdóttur. Einnig sat sveitarstjóri fundinn.

Fundurinn hófst kl. 16:00.

Gjörðir fundarins voru þessar:

  1. Fundargerðir stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga, dags. 30. apríl og 16. maí 2025.

Fundargerðir lagðar fram.

  1. Fundargerð stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, dags. 7. maí 2025.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerð aðalfundar Landskerfis bókasafna hf., dags. 6. maí 2025.

Fundargerð lögð fram.

  1. Þinggerð ársþings SSNE, dags. 2.-3. apríl 2025.

Þinggerð lögð fram.

  1. Fundargerð stjórnar SSNE dags. 7. maí 2025.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerð aðalfundar Hafnasamlags Norðurlands, dags. 7. maí 2025.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerð stjórnar Hafnasamlags Norðurlands, dags. 14. maí 2025.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerð stjórnar Norðurorku, dags. 21. maí 2025.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerð 93. afgreiðslufundar SBE, dags. 5. maí 2025.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerð 94. afgreiðslufundar SBE, dags. 16. maí 2025.

Fundargerð lögð fram. Í lið 1 er umsókn Gjögurs hf. um breytingar á áður samþykktum teikningum af raðhúsi á lóðinni Lækjarvellir 17-19 samþykkt.

  1. Fundargerðir félagsmála- og jafnréttisnefndar, dags. 11. des. 2024 og 8. maí 2025.

Fundargerðir lagðar fram.

  1. Fundargerð fræðslu- og æskulýðsnefndar, dags. 8. maí 2025.

Fundargerð lögð fram.

  1. Boð á ársfund Símey, haldinn 22. maí 2025.

Þorgeir Rúnar Finnsson fór með umboð sveitarfélagsins á fundinum. Áður samþykkt í tölvupóstum.

  1. Boð á aðalfund Sparisjóðs Höfðhverfinga, haldinn 3. júní 2025.

Erindi lagt fram. Þorgeir Rúnar Finnsson fer með umboð Grýtubakkahrepps á fundinum.

  1. Frá Sambandi ísl. sveitarfélaga, 80 ára afmælisráðstefna, dags. 11. júní 2025.

Erindi lagt fram.

  1. Frá Nýheimum, ráðstefna um byggðafestu ungs fólks, haldin 23.-24. sept. 2025.

Erindi lagt fram.

  1. Frá Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneyti, Evrópsk samgönguvika haldin 16.-22. sept. 2025.

Erindi lagt fram.

  1. Erindi frá Hólum bókaútgáfu, Norðlensku hákarlaskipin, dags. 20. maí 2025.

Erindi lagt fram. Sveitarstjóra falið að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.

  1. Mál til umsagnar frá Alþingi:

         a. Tekjustofnar sveitarfélaga.

         Erindi lagt fram.

         b. Endurskoðun sveitarstjórnarlaga.

Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps telur að sveitarstjórnarlög eigi að endurspegla og styðja við fjölbreytni í gerð og stærð sveitarfélaga. Varast ber að þrengja lögin með það að meginmarkmiði að sveitarfélög verði fjölmennari óháð landfræðilegum aðstæðum og vilja íbúa þeirra. Lýðræði verður að vera allra, ekki bara hinna stærri.

  1. Mál til umsagnar frá Alþingi, 351. mál – frumvarp um breytingu á veiðigjöldum.

Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps ítrekar umsögn sína frá 31. mars 2025.

Á þessu stigi vill sveitarstjórn bæta eftirfarandi við umsögn sína frá í mars;

  • Áætluð hækkun veiðigjalda á grenvísk fyrirtæki virðist geta numið vel á fjórða hundrað milljónum króna á ári, eða sem jafngildir hækkun um allt að 1 milljón kr. á íbúa í sveitarfélagsinu.
  • Eftir því sem meira kemur fram er ljóst að boðuð hækkun veiðigjalda verður enn meiri landsbyggðaskattur en þó var talið í upphafi.
  • Verði af þessum auknu álögum mun það draga úr fjárfestingu og nýsköpun og þar með draga úr beinni og afleiddri verðmætasköpun til framtíðar.
  • Grenvísk fyrirtæki hafa fjárfest í skipum og vinnslu fyrir háar fjárhæðir á liðnum árum, eða fyrir góðan tug milljarða. Fullyrða má að hefðu veiðigjöld síðasta áratuginn verið jafn há og nú er boðað, hefðu fjárfestingar þeirra orðið verulega minni og þar með bein og afleidd verðmætasköpun einnig.
  • Þrátt fyrir fullyrðingar um annað í greinargerð með frumvarpinu, blasir því við að svo mikil hækkun skattlagningar mun koma beint og óbeint við okkar samfélag, jafnvel hraðar en menn ætla.

Sveitarstjórn telur sérstaklega hættulegt til lengri tíma að þrengja svo að samkeppnishæfni sjávarútvegsins, enda á hann í beinni samkeppni við ríkisstyrktan sjávarútveg annarsstaðar. Á sama hátt er ómálefnalegt og varasamt að miða skattlagningu greinarinnar við verð á erlendum mörkuðum þar sem duldir styrkir kunna að vera á bak við og verðlagning er ógagnsæ. Sama gildir um verð á fiskmörkuðum sem kalla má jaðarverð. Skattlagning þarf ætíð að byggja á raunverulegum forsendum og vera gagnsæ.

Sveitarstjórn vísar til umsagnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga og hvetur jafnframt til þess að áform um hækkun veiðigjalda verði milduð verulega, verði unnin í samráði við hagsmunaaðila og breytingar látnar koma fram á lengri tíma. Nefna má einnig loðnubrest, sem hefur komið beint við útsvarstekjur Grýtubakkahrepps á liðnum árum.

Sveitarstjórn ítrekar fyrri tillögu sína um að réttlátara sé að hækka og þrepaskipta fjármagnstekjuskatti. Með því yrði skattlagður ofurarður úr öðrum greinum einnig og þannig gætt jafnræðis. Þá má ætla að með því yrði einnig að einhverju leyti skattlagður arður af fjárfestingum sem eiga uppruna sinn í arði af sjávarútvegi. Það sem þegar hefur verið tekið út úr greininni verður ekki skattlagt með veiðigjöldum.

Skorað er á Alþingi að vega og meta rökstuddar umsagnir þeirra er best þekkja til greinarinnar. Stjórnvöldum ber að stuðla að verðmætasköpun, uppbyggingu útflutningsatvinnuvega og að styrkingu lífvænlegra byggða um landið. Ekki öfugt.

 

Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð lesin upp og samþykkt. Fundi slitið kl. 19:08.

Fundargerð ritaði Þorgeir Rúnar Finnsson.