Sveitarstjórnarfundur nr. 466

07.11.2022 00:00

Sveitarstjórnarfundur nr. 466

 

Mánudaginn 7. nóvember 2022, kom sveitarstjórn Grýtubakkahrepps saman til fundar á skrifstofu hreppsins að Túngötu 3 á Grenivík. Eftirtaldir sveitarstjórnarfulltrúar voru mættir; Gísli Gunnar Oddgeirsson, Þorgeir Rúnar Finnsson, Fjóla V. Stefánsdóttir, Gunnar B. Pálsson og Inga María Sigurbjörnsdóttir. Einnig sat sveitarstjóri fundinn.

Fundurinn hófst kl. 16:30.

Gjörðir fundarins voru þessar:

  1. Forstöðumenn stofnana sveitarfélagsins mæta á fund sveitarstjórnar.

Farið yfir rekstur og fjárfestingaþörf stofnana sveitarfélagsins, eftirtaldir forstöðumenn mættu;

Þorkell Pálsson, slökkviliðsstjóri,

Sigurður Baldur Þorsteinsson, forstöðumaður véla og veitna,

Björn Andri Ingólfsson, forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar og tjaldsvæðis,

Stefán Hrafn Stefánsson, umsjónarmaður fasteigna Grýtubakkahrepps,

Margrét Ósk Hermannsdóttir, leikskólastjóri,

Þorgeir Rúnar Finnsson, skólastjóri,

Fjóla V. Stefánsdóttir, forstöðumaður Grenilundar.

 

Fleira ekki tekið fyrir og fundargerð lesin upp og samþykkt. Fundi slitið kl. 21:12.

 

Fundargerð ritaði Þorgeir Rúnar Finnsson