Sveitarstjórnarfundur nr. 382

12.11.2018 00:00

Mánudaginn 12. nóvember 2018, kom sveitarstjórn Grýtubakkahrepps saman til fundar á skrifstofu hreppsins að Túngötu 3 á Grenivík.  Allir aðalfulltrúar voru mættir, einnig sat sveitarstjóri fundinn. 

Fundurinn hófst kl. 17:00.

Gjörðir fundarins voru þessar:

1.  Fjárhagsáætlun 2019 – 2022, síðari umræða, framhald.  Forstöðumenn stofnana mæta til fundar.

            Forstöðumenn stofnana þeir Fjölnir, Ásta, Margrét, Sigurður og Fjóla mættu á fundinn og fóru yfir rekstur og framkvæmdir næstu ára.  Unnið áfram í fjárhagáætlunargerð. Umræðu frestað.

Fleira var ekki tekið fyrir, fundargerð lesin upp og samþykkt.  Fundi slitið kl. 20.05.

Margrét Melstað ritaði fundargerð.