Landbúnaðarnefnd 29. janúar 2018

29.01.2018 00:00

Fundur var haldinn hjá Landbúnaðarnefnd 29. janúar 2018. Mættir á fundinn voru Ásta F. Flosadóttir og Margrét Melstað sem ritaði fundinn. Guðjón Þórsteinsson komst ekki enn var rætt við í síma í byrjun fundar.

  1. 1.       Girðing ofan vegar frá Fnjóská inn að Víkurskarði.

Landbúnaðarnefnd skorar á Vegagerðina að girða veggirðingu ofan vegar frá Fnjóská og inn að Víkurskarði til að koma í veg fyrir átroðning búfjár á vegstæðið.

  1. 2.       Veggirðing og ristarhlið við nýja Gljúfurárrétt.

Landbúnaðarnefnd skorar á Vegagerðina að setja upp nýtt ristarhlið í Höfðaafleggjarann við nýju Gljúfurárréttina og girða frá Gljúfurárbrú í aðhaldið við réttina og loka þannig vegsvæðinu.

  1. 3.       Reglur um umgengni og notkun á nýju Gljúfurárréttinni.

Gengið verði frá reglum vegna notkunar og umgengni í Gljúfurárrétt á næsta fundi.

 

 

Ekkert fleira tekið fyrir og fundi slitið.