Takmarkanir á heimsóknum á Grenilund

Nú hefur heimsóknarbanni verið aflétt og eftirfarandi reglur taka gildi á ný:

Í ljósi þess að COVID-19 smitum hefur fjölgað í samfélaginu síðustu daga er talið nauðsynlegt að bregðast við til að vernda viðkvæma hópa.

Ákveðið hefur verið að takmarka þann fjölda gesta sem koma inn á Grenilund á hverjum tíma þannig að aðeins einum aðstandanda er heimilt að vera í heimsókn hjá íbúa á hverjum tíma.

 Heimsóknarreglur eru eftirfarandi:

  1. Aðeins einn aðstandandi má heimsækja hvern íbúa hverju sinni. Undanþága er veitt við mikil veikindi íbúa og þarf þá að fá leyfi frá hjúkrunarfræðingi.
  2. Aðstandendur þurfa að spritta hendur um leið og þeir koma inn, í upphafi heimsóknar.
  3. Aðstandendur eru beðnir um að fara beint inn á herbergi til íbúa og stoppa ekki að óþörfu á leiðinni þangað.
  4. Vinsamlegast virðið 2ja metra regluna og forðist snertingu við íbúa eins og hægt er.
  5. Að heimsókn lokinni eru aðstandendur beðnir um að fara beint út án þess að stoppa og spjalla á leiðinni. Vinsamlegast sprittið hendur við brottför.

 Alls ekki koma í heimsókn ef:

  • Þú ert í einangrun eða sóttkví.
  • Þú ert að bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku.
  • Þú hefur verið erlendis og ekki eru liðnir 14 dagar frá komu til landsins.
  • Þú ert með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.). 

 Þessar reglur taka gildi 31. júlí 2020.