- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Um helgina kom í ljós leki á veitunni í Ægissíðu sem vonandi er meginorsök fyrir vatnsskorti í síðustu viku. Í gær var lekinn stöðvaður til bráðabirgða en á morgun miðvikudag, verður unnin fullnaðarviðgerð. Þá verður lokað fyrir vatn í Ægissíðu og Miðgörðum, kl. 10:00, áætlað að viðgerð verði lokið um hádegi.
Vonast er til að nægt vatn verði áfram, en þó verður fylgst vel með þar sem frekar lítið flæði er enn í vatnsbólum. Ef þörf verður á að spara vatn verða íbúar upplýstir um það aftur.