Snjóflóð og vegur lokaður

Best að vera bara innan við gluggann í dag!
Best að vera bara innan við gluggann í dag!

Snjóflóð féll á veginn við Laufás nú fyrir hádegið og er vegurinn lokaður.  Hætta getur verið á fleiri flóðum á Grenivíkurvegi og eru íbúar beðnir að vera ekki á ferðinni.

Ekki verður átt við mokstur fyrr en veðri slotar og talið er öruggt.

Sveitarstjóri