- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Landbúnaðar- og umhverfisnefnd hefur skilað tillögum sínum til sveitarstjórnar um upprekstrardaga. Sveitarstjórn hefur staðfest tillögu nefndarinnar sem er svohljóðandi:
Landbúnaðar- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að upprekstrardagur sé miðaður við 10. júní.
Eins og áður eru bændur eindregið hvattir til að gæta hófs við upprekstur og sleppingar, fylgjast með ástandi gróðurs og vega og láta vita sín á milli hvenær þeir hyggist fara með fé sitt, hvort heldur sem er til rekstrar eða keyrslu, svo ekki fari of margir á sama tíma.
Þá leggur nefndin til að leyfilegt verði að sleppa hrossum á afrétt frá og með 1. júlí og verða þau að vera komin af afrétt í síðasta lagi 31. ágúst.