Rjúpnaland til leigu

Rjúpnaland til leigu

Hér með auglýsir sveitarstjórn Grýtubakkahrepps eftir tilboðum í leigu á Hvammslandi ofan girðingar, (fastanr. 153048) til rjúpnaveiða næstu tvö haust, 2026 og 2027, með möguleika á framlengingu samnings um tvö ár ef báðir aðilar eru því samþykkir.

Miðað skal við hóflegt veiðiálag og minnt á reglur um búnað og veiðitíma, bjóðendur skulu gera grein fyrir sinni sýn á veiði og umgengni um landið í örstuttu máli í tilboði.

Sveitarstjórn áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

Tilboðum ber að skila í lokuðu umslagi merkt „Hvammsland“ á skrifstofu Grýtubakkahrepps, Túngötu 3, Grenivík, fyrir kl. 15:00 mánudaginn 19. október, þar sem þau verða opnuð strax að loknum tilboðsfresti og er bjóðendum heimilt að vera viðstaddir opnun tilboða.

Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri.

Grenivík 5. október 2026,
Sveitarstjóri Grýtubakkahrepps