Nýr skólastjóri - skólaslit

Þröstur sveitarstjóri, Aníta og Þorgeir.
Þröstur sveitarstjóri, Aníta og Þorgeir.

Aníta Jónsdóttir hefur verið ráðin í stöðu skólastjóra Grenivíkurskóla skólaárið 2026-2027 en Þorgeir Rúnar Finnsson verður í námsleyfi næsta vetur.

Aníta er kennari og náms- og starfsráðgjafi með mikla reynslu. Hún hefur starfað sem kennari og náms- og starfsráðgjafi í grunnskólum um árabil, sem verkefnastjóri hjá Símey og nú síðast sem náms- og starfsráðgjafi í Háskólanum á Akureyri, en auk þess hefur hún sinnt stöðu deildarstjóra í grunnskóla í forföllum. Þá hefur hún verið í forystu um innleiðingu Jákvæðs aga í leik- og grunnskólum víða um land og haldið fjölda námskeiða um stefnuna fyrir starfsfólk og foreldra.

Við bjóðum Anítu hjartanlega velkomna til starfa við Grenivíkurskóla og hlökkum til samstarfsins.

Grenivíkurskóla verður slitið á morgun föstudaginn 5. júní kl. 17:00.