- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Talningu er nú lokið eftir sveitarstjórnarkosningarnar í dag.
Á kjörskrá voru 281. Atkvæði greiddu 195, eða 69,39% sem er heldur minna en við síðustu kosningar.
Enginn seðill var ógildur, einn seðill var auður.
Eftirtaldir hlutu kjör sem aðalmenn í sveitarstjórn Grýtubakkahrepps 2026 til 2030:
Gísli Gunnar Oddgeirsson, 164 atkvæði
Þorgeir Rúnar Finnsson, 135 atkvæði
Inga María Sigurbjörnsdóttir, 129 atkvæði.
Árin Páll Jóhannsson, 74 atkvæði.
Ingólfur Kr. Ásgeirsson, 71 atkvæði.
Varamenn voru kjörnir:
1. varamaður, Birgir Már Birgisson, 74 atkv. til 1. varam. og ofar
2. varamaður, Sigrún Björnsdóttir, 82 atkv. til 2. varam. og ofar
3. varamaður, Ingibjörg Þorvaldsdóttir, 80 atkv. til 3. varam. og ofar
4. varamaður, Hörður Guðmundsson, 60 atkv. til 4. varam. og ofar
5. varamaður, Stefán Hrafn Stefánsson. 48 atkv. til 5. varam. og ofar.
Nýrri sveitarstjórn og varamönnum er óskað innilega til hamingju með kjörið og velfarnaðar í sínum störfum.

Kjörstjórn einbeitt við talningu

Grenivík að kvöldi kjördags