- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Nú er hjólakeppninni Road Worlds for Seniors 2026 lokið. Keppnin er stærsti alþjóðlegi hjólaviðburður eldri borgara og í ár tóku þátt 7.374 einstaklingar í 14 löndum.
Íbúar Grenilundar stóðu sig afar vel og enduðu í 74. sæti á heildarlistanum miðað við samanlagða vegalengd. Þegar horft er til meðalvegalengdar hvers keppanda var árangurinn enn sterkari og hefði Grenilundur verið í kringum 20. sæti.
Sérstaklega ber að nefna einn keppanda okkar sem náði 3. sæti meðal íslenskra karlkyns þátttakenda með samtals 547 hjólaða kílómetra. Það er glæsilegur árangur og mikil fyrirmynd fyrir aðra.
Keppnin snýst þó um meira en tölur og sætaröðun. Hún hvetur til hreyfingar, eflir félagsleg tengsl og skapar gleði og samveru.
Við á Grenilundi erum afar stolt af öllum sem tóku þátt og sýndu að aldur er engin hindrun þegar kemur að hreyfingu, dugnaði og keppnisanda. Innilegar hamingjuóskir til allra þátttakenda og við hlökkum til að taka þátt aftur á næsta ári. 🚴♀️🏅




