Matjurtagarðar

Búið er að opna fyrir umsóknir um reiti til ræktunar matjurta.   

Um er að ræða 20 fermetra reiti og er leigan kr. 3000,- á reit fyrir sumarið. 
Vatn til vökvunar er á staðnum, en útsæði, fræ og áburð þurfa leigendur að skaffa sjálfir.    

Garðurinn verður unninn í vor svo fljótt sem tíðarfar leyfir.  

Umsóknum skal skilað inn á skrifstofu Grýtubakkahrepps.