Ljósleiðari heim á síðustu bæina í sumar

Þröstur sveitarstjóri, Sigurður Ingi ráðherra og Haraldur varaformaður stjórnar Fjarskiptasjóðs íbyg…
Þröstur sveitarstjóri, Sigurður Ingi ráðherra og Haraldur varaformaður stjórnar Fjarskiptasjóðs íbyggnir við undirritun

Grýtubakkahreppur hefur fengið styrk að upphæð kr. 984.000,- úr verkefninu "Ísland ljóstengt" til að ljúka ljósleiðaravæðingu sveitarfélagsins.  Einnig fær hreppurinn úr byggðaáætlun kr. 650.000,- í sama tilgangi.

Ljósleiðari var lagður í sveitarfélaginu á flest heimili fyrir allmörgum árum, grunnetið er frá 2008.  Er þetta í fyrsta skipti sem styrkir bjóðast hingað til þessa verkefnis.  Í sumar verður lagt heim á bæina Hvamm, Kolgerði og Pálsgerði.  Verður þá í boði ljósleiðari á öll heimili í hreppnum utan eins bæjar sem ekki óskaði eftir tengingu.

Þetta er mikilvægt skref og styrkir búsetu enn frekar.  Góð nettenging er ein af grunnþörfum atvinnulífs og heimila og framsýni sveitarstjórnar á sínum tíma ber að þakka vel.