Kveðja frá Grenivík

17 kerti í Húsavíkurkirkju.  Mynd; RÚV, Ólöf Rún Erlendsdóttir.
17 kerti í Húsavíkurkirkju. Mynd; RÚV, Ólöf Rún Erlendsdóttir.

Okkur var öllum brugðið við fréttir af 17 sjómönnum í bráðum háska. Útlit var svart, en ótrúlegar framfarir í björgunarbúnaði, öflugt viðbragð björgunaraðila ásamt hæfni og áræðni þyrluáhafnar, heimti 14 þeirra úr helju.

Þetta snertir okkur beint í hjartastað, fáir skilja þessar aðstæður betur en íbúar sjávarbyggða.

Um leið og við þökkum af alhug þeim björgunaraðilum sem að komu og sem unnu þrekvirki, sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur til allra sem nú eiga um sárt að binda eftir að Jökull ÞH fórst.

Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps