- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Hvað gerist í Krubbi? Þar er nýsköpunarvöðvinn þjálfaður, þátttakendum veittur innblástur og hugmyndum komið skrefinu lengra.
Þátttaka í Krubbi gæti vel flokkast sem endurmenntun eða fræðsluviðburður fyrir starfsfólk. Nýsköpunarhugsun er t.d. sú færni sem er hvað verðmætust og eftirsóttust af atvinnurekendum samkvæmt World Economic Forum og áherslan hjá okkar stjórnvöldum og heima í héraði gegnum Sóknaráætlun mikil og skýr.
Krubbur byrjar kl. 13:00 föstudaginn 20. mars og verður til 17:00 laugardeginum og svo uppskerugleði áfram fyrir þau sem langar/geta/vilja.