Höfðinglegar gjafir

Ægir Jóhannsson frá Gjögri, Þorsteinn Harðarson frá Frosta, Fjóla V. Stefánsdóttir forstöðumaður Gre…
Ægir Jóhannsson frá Gjögri, Þorsteinn Harðarson frá Frosta, Fjóla V. Stefánsdóttir forstöðumaður Grenilundar og Jenný Jóakimsdóttir frá Hlín.

Grenilundi hafa í haust borist afar höfðinglegar gjafir.

Úgerðarfélögin Gjögur hf. og Frosti ehf. ásamt kvenfélaginu Hlín, hafa komið færandi hendi og kostað kaup á blöðruskanna, sjúkradýnum og fleiru.

Blöðruskanni er ómskoðunartæki sem mælir magn þvags í þvagblöðru án þess að setja upp þvaglegg. Hann hjálpar til við að greina þvagteppu og hvort blaðran tæmist nægilega vel. Notkun blöðruskanna minnkar sýkingarhættu og getur komið í veg fyrir sjúkrahúsinnlagnir.

Það er heimilinu ómetanlegt að eiga slíka bakhjarla að og eru þessum aðilum færðar alúðar þakkir fyrir.