Góð gjöf til Grenilundar

Frá afhendingu sjónvarpsins, f.v.:  Einar, Elísa eiginkona Einars, Gunnar og Fjóla forstöðumaður Gre…
Frá afhendingu sjónvarpsins, f.v.: Einar, Elísa eiginkona Einars, Gunnar og Fjóla forstöðumaður Grenilundar

Á dögunum var Grenilundi fært glæsilegt sjónvarp fyrir heimilisfólk.  Það var Oddfellow reglan á Akureyri sem stóð fyrir þessari höfðinglegu gjöf, en það voru Einar Hjartarson og Gunnar Karlsson sem afhentu gjöfina.  Sjónvarpinu hefur verið komið fyrir í sal þar sem það leysir af hólmi gamalt og minna tæki og munu íbúar Grenilundar vel njóta.

Gjöfin er öðrum þræði til minningar um Gísla Björnsson sem dvaldi á Grenilundi síðustu árin.  Gefendum eru færðar alúðarþakkir fyrir gjöfina.