Fundur um endurskoðun aðalskipulags 29. apríl

Almennur fundur verður haldinn miðvikudaginn 29. apríl í matsal Grenivíkurskóla kl. 17:00.

Dagskrá:

  • Kynning á skipulagslýsingu þar sem lýst er áformum við endurskoðun aðalskipulags Grýtubakkahrepps
  • Umræður og fyrirspurnir

Árni Ólafsson skipulagsráðgjafi og arkitekt verður á fundinum ásamt sveitarstjórn og sveitarstjóra.

Íbúar eru hvattir til að mæta á fundinn og vera virkir þátttakendur í skipulagsferlinu.

Allir velkomnir.

Sveitarstjóri