Frístundabyggð Sunnuhlíð, Grýtubakkahreppi – kynning deiliskipulagstillögu á vinnslustigi

Frístundabyggð Sunnuhlíð, Grýtubakkahreppi – kynning deiliskipulagstillögu á vinnslustigi

Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps samþykkti á fundi sínum þann 3. júní 2019 að kynna tillögu vinnslustigi vegna endurskoðunar deiliskipulags fyrir frístundabyggðina Sunnuhlíðs skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða endurskoðun gildandi deiliskipulags sem öðlaðist gildi árið 2006. Helstu breytingar í endurskoðuðu deiliskipulagi eru að heimilt byggingarmagn hefur verið aukið, byggingarreitir stækkaðir, einni lóð bætt við innan skipulagssvæðis, auk þess sem reglum um aðstöðuhús og viðmiðum um framkvæmdatíma bætt við skipulagsskilmála.

Skipulagstillagan ásamt umhverfisskýrslu liggur frammi á sveitarskrifstofu Grýtubakkahrepps milli 18. júní 2019 og 2. júlí 2019 og á heimasíðu sveitarfélagsins, grenivik.is.    Einnig verður haldinn opinn kynningarfundur í Litla sal Grenivíkurskóla föstudaginn 28. júní næstkomandi kl. 17:00. Á fundinum verður deiliskipulagstillagan kynnt og einnig gefst kostur á að ræða önnur mál sem að frístundasvæðinu í Sunnuhlíð snúa.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að koma ábendingum á framfæri til þriðjudagsins 2. júlí 2019. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast á sveitarskrifstofu Grýtubakkahrepps, Túngötu 3, 610 Grenivík, eða í tölvupósti á netfangið vigfus@sbe.is.

Greinagerð - Sunnuhlíð
Deiliskipulag - Sunnuhlíð

Skipulags- og byggingarfulltrúi