Foreldrar athugið - áríðandi

Grunnteikning af svæðinu, sett inn á loftmynd.
Grunnteikning af svæðinu, sett inn á loftmynd.

Nú fara framkvæmdir við verkefnið "Þar sem vegurinn endar" senn að hefjast.  Þar sem svæðið kringum Útgerðarminjasafnið er gjarna leiksvæði barna, er mjög mikilvægt að foreldrar hafi eftirfarandi í huga:

  • Erfitt er að verja framkvæmdasvæðið fyrir gangandi umferð, það mun því geta skapast hætta meðan unnið er með vélum á svæðinu.
  • Mjög mikilvægt er að foreldar brýni fyrir börnum að vera ekki að leik á og við vinnusvæðið.
  • Það er á ábyrgð okkar sem erum fullorðin að líta eftir og tryggja að ekki skapist slysahætta af þessu verkefni, því verða allir að leggjast á eitt að fylgjast með börnum og grípa inn í ef þau ætla inn á framkvæmdasvæðið.

Stefnan er að verkið vinnist hratt og vel og það verði ekki of langur tími þar sem hætta getur skapast.

Sveitarstjóri