Ferðumst saman – morgunverðarfundur um almenningssamgöngur milli byggða

Það getur verið fallegt að fljúga, ekki verra ef verið lækkar verulega
Það getur verið fallegt að fljúga, ekki verra ef verið lækkar verulega

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið býður til morgunverðarfundar um almenningssamgöngur milli byggða landsins fimmtudaginn 28. febrúar. Á fundinum verður fjallað um nýja stefnumótun um almenningssamgöngur fyrir allt landið.

Fundurinn verður haldinn í Iðnó við Tjörnina í Reykjavík og er opinn öllum. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:00 en dagskrá hefst kl. 8:30 og stendur til kl. 10.

Fundinum verður einnig streymt í beinni útsendingu á vef Stjórnarráðsins.  Því geta allir fylgst með honum, hvar sem þeir eru staddir á landinu.

Dagskrá:

  • Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra setur fundinn.
  • Árni Freyr Stefánsson, sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.

„Ferðumst saman – í átt að heildstæðu almenningssamgöngukerfi milli byggða.“

  • Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar.

„Mikilvægi almenningssamgangna fyrir landsbyggðina.“

  • Annette Skaarnæs, framkvæmdastjóri markaðsmála hjá EnTur í Noregi

Entur – connecting public transport across Norway.

  • Pallborðsumræður með fyrirlesurum
  • Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri.