- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Forsætisráðuneytið, í samvinnu við Forlagið, gefur út bók með þjóðhátíðarljóðum og greinum um fjallkonuna 17. júní 2024 sem verði gefin landsmönnum. Bókinni verður dreift um landið og geta landsmenn nálgast hana í bókasöfnum og sundlaugum. Í Grýtubakkahreppi afhendist bókin í sundlauginni og á skrifstofunni.
Titill bókarinnar er Fjallkonan. Þú ert móðir vor kær, með vísan til ljóðs Þorsteins Erlingssonar.
Forsætisráðherra ritar formála, greinahöfundar eru; Goddur, Ragnheiður Kristjánsdóttir, Silja Aðalsteinsdóttir og Áslaug Sverrisdóttir. Þýðingar á formála og útdrætti greina verða á pólsku og ensku.
Túngötu 3, 610 Grenivík
Skrifstofan er opin mánudaga - fimmtudaga frá kl: 10:00-15:00 - Kt: 580169-2019