Bakvarðasveit fyrir Grenilund

Við leitum að fólki í varalið Grenilundar.  Hóp sem við getum leitað til ef hópur starfsmanna lendir í sóttkví eða einangrun vegna COVID-19 smits og hjúkrunarheimilið stendur frammi fyrir alvarlegri undirmönnun.  Landlæknir hefur mælt með slíkri ráðstöfun við heilbrigðisstofnanir. Að sjálfsögðu er um launuð störf að ræða. Við leituðum eftir fólki í mars og voru margir sem skráðu sig, sem betur fór þurftum við þá ekki að leita til þessa ágæta fólks sem var reiðubúið til þess að hjálpa okkur. Nú er staðan þannig að við leitum aftur eftir fólki bæði er staðan erfið í samfélaginu og nauðsynlegt að uppfæra listann.

Það eru ýmiss störf sem þarf að sinna á Grenilundi fyrir utan aðhlynningu: eins og þvottur, matseld, sótthreinsun og það sem er mikilvægast að vera heimilsfólki stuðningur á erfiðum tímum.

Skráðu þig í varalið Grenilundar í síma 863-8414 eða sendu tölvupóst á grenilundur@grenivik.is

Kveðja,

Fjóla V. Stefánsdóttir, forstöðumaður