Áríðandi tilkynning vegna Grenilundar

Áríðandi tilkynning til íbúa, ættingja

og starfsfólks Grenilundar

vegna sýkingar af völdum Kórónaveirunnar (COVID-19) á Íslandi

 

Stjórn Grenilundar hefur tekið þá ákvörðun að loka hjúkrunarheimilinu fyrir heimsóknum ættingja og annarra gesta frá og með 7. mars 2020 þar til annað verður formlega tilkynnt.. Er þetta gert að höfðu samráði við Sóttvarnarlækni og Landlækni eftir að Neyðarstigi almannavarna var lýst yfir fyrr í dag. Grenilundur er hér fylgja eindregnum tilmælum þessara aðila sem eru í framvarðasveit Almannavarna Íslands.

Heilsa og velferð íbúanna þarf alltaf að vera í forgangi!

Nú er staðfest að smit vegna Kórónaveirunnar hafa borist á milli einstaklinga í þjóðfélaginu. Þar sem íbúar Grenilundar eru flestir aldraðir og / eða með ýmsa undirliggjandi sjúkdóma eru þeir í sérstökum áhættuhópi tengt því að veikjast alvarlega af Kórónaveirunni.

Leita þarf allra leiða til að draga úr þeirri hættu að íbúar heimilisins veikist af Kórónaveirunni. Okkur þykir mjög leitt að þurfa að taka svo stóra ákvörðun en þetta er gert með velferð íbúanna okkar í húfi og biðjum við fólk að sýna þessari ákvörðun virðingu og skilning. Það er ljóst að það getur reynst íbúa mjög erfitt að fá ekki heimsóknir frá ættingjum sínum og á sama hátt getur það reynst ættingjum íbúans mjög erfitt að heimsækja hann ekki.  Það er samt nauðsynlegt að grípa til þessarra ráðstafana til að koma í veg fyrir að íbúi veikist af veirunni og eins geta smit borist frá ættingjum eins íbúa til annars íbúa.

Jafnframt verður umferð allara annara gesta nauðsynlegs starfsfólks á vakt, tökmörkuð inn á Grenilund og gerðar hafa verið sérstakar reglur um það. Svo sem birgja með vörur, iðnaðarmenn og aðra sem þurfa að koma inn á heimilin.

Við bendum ykkur á að hafa samband við: Fjólu Stefánsdóttur í síma 863-8414 netfang: grenilundur@grenivík.is

Einnig er mikilvægt að þið kynnið ykkur upplýsingar og leiðbeiningar á vef Landlæknisembættisins www.landlaeknir.is Þar eru greinargóðar upplýsingar og leiðbeiningar tengdar stöðu málar, en þær geta breyst frá degi til dags.

Stjórn Grenilundar