Almannavarnir lýsa yfir óvissuástandi vegna jarðhræringa við Grímsey

Þúsundir skjálfta hafa orðið síðustu dagana, mynd af vef veðurstofunnar.
Þúsundir skjálfta hafa orðið síðustu dagana, mynd af vef veðurstofunnar.

Almannavarnir hafa lýst yfir óvissuástandi vegna jarðskjálftahrinunnar við Grímsey.  Af því tilefni er rétt að minna íbúa á heimasíðu Almannavarna þar sem er að finna ráð um forvarnir til að minnka mögulegt tjón og slysahættu af völdum stórra skjálfta.

Sjálfsagt er að fara yfir t.d. hvar vatnsinntök eru í húsum, en vatnstjón eru með algengustu tjónum eftir stóra skjálfta og þá er mikilvægt að vita hvar á að skrúfa fyrir.

Allur er varinn góður, þó vonandi fjari hrinan út án stórhamfara.