Allir með, íþróttahátíð 22. mars á Akureyri

Sunnudaginn 22. mars kl.14:00 - 15:15 verður haldin Allir með Íþróttahátið í Íþróttahöllinni á Akureyri.

Hér við hliðina er auglýsing fyrir íþróttahátíðina og hér er slóð á viðburðinn á facebook https://fb.me/e/6SIKwgdGE

Hægt er að skrá sig í gegnum QR-kóðann á auglýsingunni, en einnig er velkomið að mæta án skráningar.

Verkefnið er hugsað sem samvinnuverkefni Íþróttahéraðs, íþróttafélags/íþróttafélaga, sveitarfélags á hverju svæði. Svæðisfulltrúar halda utan um undirbúning og taka þátt í æfingunni ásamt Sólu- lukkudýri Allir með. Æfingin er sett upp í formi stöðva en allir þátttakendur fara í gegnum æfinguna á sínum forsendum

Börn af öðrum svæðum eru einnig hvött til að fara í æfingarferð með fjölskyldunni og þannig skapa tækifæri til að mynda tengsl yfir stærra svæði.

Svæðisstöð íþróttahéraða.