Ágúst á ferðinni - allir velkomnir

Í sumar er ég með tónleikaferðalag undir heitinu Ágúst á ferðinni, og þann 13.maí verð ég á Grenivík í boði Frosta ehf & Eyjabita.
Með nýútgefinni plötu, ásamt því að vera nýr brekkusöngvari Þjóðhátíðar í Eyjum, langar mig að nýta tækifærið og halda tónlistardag fyrir bæjarfélög víðsvegar um landið, ásamt hljómsveit.
Og þann 13.maí ætla ég yfir daginn að kíkja með gítarinn á nokkra vel valda staði á Grenivík, og svo klukkan 18:00 verða ókeypis fjölskyldutónleikar með hljómsveit.
Fjölskyldu tónleikarnir verða í Grenivíkurskóla og verður frítt inn í boði Frosta ehf og Eyjabita. Tónleikarnir verða um 60 mínútur og því hentugt fyrir allan aldur. Á tónleikunum mun ég að flytja í bland eigið efni ásamt barna og brekkusöngs lögum fyrir alla til að syngja með.
Hlakka rosalega mikið til að koma til Grenivíkur og ég sé ykkur vonandi sem flest.
Sjáumst!
Ágúst Brynjarsson