1. maí, dagur íslenska hestsins

1. maí er alþjóðlegur dagur íslenska hestsins.

Af því tilefni boða félagsmenn Þráins til hópreiðar frá hesthúsahverfinu á Grenivík kl.10:00.  Þaðan verður riðið um götur bæjarins, stoppað við dvalarheimilið og heilsað upp á íbúa Grenilundar og svo að lokum riðið upp í reiðhöll.  Þar verður teymt undir börnum kl.11:00.

Félagsmönnum og íbúum verður svo boðið í kaffi, kleinur og pönnsur.

Hestamannafélagið Þráinn