Laust starf á skrifstofu

Grýtubakkahreppur auglýsir eftir starfsmanni á skrifstofu.

Helstu verkefni eru vinna við færslu bókhalds og afstemmingar, innheimtur og almenn skrifstofustörf.

Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af og þekkingu á bókahaldsvinnu, þekking á bókhaldskerfinu DK er kostur.

Almenn tölvuþekking nauðsynleg og farið er fram á ágæta færni í Íslensku og gjarna nokkra færni í öðru tungumáli. Stúdentspróf eða meiri menntun er kostur.

Laun skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga. Starfshlutfall getur verið eftir samkomulagi, að lágmarki 50%, og gott að viðkomandi geti byrjað sem fyrst.

Við leitum að nákvæmum og samviskusömum einstaklingi sem er tilbúinn að leggja sig fram og hefur áhuga á að þróast í starfi og sinna fjölbreyttum verkefnum sem falla til.

Umsóknum skal skilað á skrifstofu Grýtubakkahrepps eða á netfangið sveitarstjori@grenivik.is. Umsóknarfrestur er til 20. september.

Starfið er enn laust og umsóknarfrestur framlengdur.

Nánari upplýsingar gefur sveitarstjóri á skrifstofunni og í síma 414 5400.