Grenivík, ný íbúðarbyggð – kynning skipulagslýsingar

Grenivík, ný íbúðarbyggð – kynning skipulagslýsingar vegna deiliskipulags fyrir íbúðarbyggð sunnan Grenivíkurvegar

Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps samþykkti á fundi sínum 15. nóvember sl. að vísa skipulagslýsingu vegna deiliskipulags fyrir nýtt íbúðarhverfi sunnan Grenivíkuvegar í kynningarferli skv. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Markmið deiliskipulagsins er að skipuleggja íbúðarlóðir á svæði 136ÍB á gildandi aðalskipulagi. Með framlagningu lýsingar hefst samráð við íbúa, aðra hagsmunaaðila og umsagnaraðila um gerð deiliskipulagsins.

Skipulagslýsing vegna verkefnisins liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins frá 17. nóvember til 10. desember 2021 og er auk þess aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins, grenivik.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn frestur til föstudagsins 10. desember 2021 til að gera athugasemdir við skipulagslýsinguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast á skrifstofu Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á sbe@sbe.is.

Skipulagslýsing.

Skipulags- og byggingarfulltrúi