Útivistarreglur barna og unglinga í Grýtubakkahreppi

Börn 12 ára og yngri mega ekki vera á almannafæri eftir klukkan 20:00 nema í fylgd með fullorðnum. Börn sem eru á aldrinum 13 til 16 ára skulu ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22:00 enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndir skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Á tímabilinu 1. maí til 1. september lengist útivistartími barna um tvær klukkustundir. Aldursmörk þessa ákvæðis miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag.