Ártún ferðaþjónusta

Ártún

Ártún, Heimagisting - Boðið er upp á 5 notaleg herbergi á sér hæð, þrjú 2ja manna herbergi og tvö 3ja manna herbergi. Öll herbergin eru nýstandsett og vönduð rúm.  Á hæðinni er sér snyrting með sturtu. Möguleiki á að setja inn aukadýnu í herbergin. Morgunverður, í veitingaskála á neðri hæð, innifalinn. Hlý og persónuleg þjónusta. Ath! Hægt er að fá keyptan mat ef pantað er fyrirfram, eða eftir nánara samkomulagi.

 

Ártún, Tjaldstæði - Góð aðstaða, og nægt pláss er fyrir tjöld, fellihýsi, húsvagna og húsbíla. Góð hreinlætisaðstaða. Snyrtingar með sturtu, inniaðstaða fyrir fólk til að matast. Rafmagn. Seyrulosun er á staðnum. Möguleiki á þráðlausri internettengingu. Vínveitingar eru í boði í veitingaskálanum í Ártúni. Tjaldstæðin eru vel slétt og þétt. Rýmið er nánast óendanlegt og gefur því þeim sem það vilja, kost á að vera vel útaf fyrir sig. Opnunartími tjaldstæðisins er frá 1. maí - 30. september, eða eftir nánara samkomulagi.

Ártún er einnig á Facebook