Úr skólalífinu 03.02.13, 16:37 Dagur leikskólans.
Dagur leikskólans verður nú haldinn hátíðlegur í sjötta sinn, miðvikudaginn 6. febrúar en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands Íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólastarf, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og kynna starfið út á við.
Í tilefni dagsins ætlum við í Krummafæti að hafa opið hús og viljum bjóða foreldrum og öllum velunnurum að koma í heimsókn til okkar og fylgjast með daglega starfinu okkar sem er bæði fjölbreytt og skemmtilegt. Það er við hæfi á þessum degi að að taka í notkun nýbygginguna okkar "Stórasvæði" sem er stórkostleg viðbót fyrir alla þætti starfsemi okkar.
Velkomin í Krummafót 6. febrúar og að sjálfsögðu verður rjúkandi kaffi og ilmandi kruðerí á boðstólum :) |