| |
Afmæli í maí. 3. Aníta 4 ára 8. Bríet Kolbrún 4 ára 28. Kristjana 3 ára
|
|
Núna: 2
Í dag: 54
Í allt: 204015
|
|
|
|
|
Daglega starfið - Samverustund og söngur
Samverustund
Í samverustundum gefst börnum og starfsfólki gott tækifæri til að eiga saman notalega stund í friði og ró. Þá er lesið, sungið, og spjallað um það sem vekur áhuga barnanna hverju sinni. Í samverustundum læra börnin að taka tillit til annarra og hafa hljótt. Þau læra að slaka á og njóta þess að hlusta á aðra, vera saman í rólegheitum.
Söngur
Söngur sem sunginn er með eigin nefi er aðal tjáningarform tónlistar í Krummafæti, hvort sem hann er sjálfsprottinn eða valin sönglög. Í söng tjáum við og túlkum tilfinningar okkar. Að syngja saman í hóp eða fyrir aðra veitir gleði og eflir félagsvitund.
Við syngjum alla daga og skipulagðar söngstundir eru flesta daga. Við höfum efnisvalið sem fjölbreyttast og vinnum með vísur, söngva, þulur og orðaleiki, helst að vali barnanna. Við hlustum á geisladiska þegar tækifæri gefast.
Við leggjum áherslu á að börnin læri að hlusta á tónlist og þá valda tónlist sem hæfir hverjum þroska fyrir sig. Einnig leggjum við áherslu á að börnin hlusti eftir hljóðum úr umhverfinu.
Hljóðfæri eru notuð stöku sinnum með söng (hristur, trommur, sílafónn, taktstafir). Börnin æfa sig líka með hljóðfærin á sjálfsprottinn hátt. Steinar úr náttúrunni eru einnig notaðir ásamt ýmsu öðru sem finnst í náttúrunni.
Áherslu þættir tónlist eru:
- Söngur sem sunginn er með eigin nefi
- Hlusta á tónlist (valda tónlist)
- Hlusta á umhverfishljóð
- Þjálfast í að koma fram fyrir hóp
Prentvæn útgáfa
|
|
|
|
|
maí 2013  |
| S | M | Þ | M | F | F | L |
| | | 1 |
2 |
3 |
4 |
| 5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
| 12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
| 19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
| 26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
|
|
|
|