| |
Afmæli í maí. 3. Aníta 4 ára 8. Bríet Kolbrún 4 ára 28. Kristjana 3 ára
|
|
Núna: 4
Í dag: 49
Í allt: 203843
|
|
|
|
|
Sagan
Krakkabúð - Krummafótur
Það var árið 1983 að nokkrar kvenfélagskonur og mæður hér í sveit tóku sig saman og fóru þess á leit að opnaður yrði leikskóli á Grenivík. Farið var á fund hreppsnefndar sem sendi þær að skoða gamla sláturhúsið, en reyndist það vera með eindæmum afleitur húsakostur. Það varð úr að hluti af húsnæði Kaupfélags Eyfirðinga á Grenivík, sem þá var hætt rekstri skyldi notaður fyrir leikskóla. Kvenfélagskonur unnu í sameiningu að því að breyta gömlu búðinni í leikskóla, en Grýtubakkahreppur sá um kostnaðarhliðina. Unnið var dag og nótt við að rífa og smíða, pússa, mála og þrífa uns allt var orðið fínt. Meðlimir Lions klúbbsins smíðuðu svo dúkkurúm, skilrúm, stóra korktöflu og smíðaðar voru rólur, vegasalt, sandkassi og tvö dúkkuhús. Auglýst var í búðinni eftir leikföngum í leikskólann og einnig voru keypt ný leikföng.
Tók leikskólinn sem nefndur var Krakkabúð til starfa 1. nóvember 1983 og var opinn til 28. apríl 2000 en þá fluttist starfsemin í nýtt húsnæði að Lækjarvöllum 5. Var gamla húsnæðið löngu úr sér gengið og tími kominn til að breyta og bæta. Sveitarfélagið lét byggja þar nýjan leikskóla og fékk hann nafnið Krummafótur.
Í leikskólanum Krummafæti er ein deild þar sem aldursbilið er 20 mán til 6 ára.
Í dag eru 25 börn í Krummafæti og 6 starfsmenn.
Krummafótur opnar klukkan 7:30 og lokar klukkan 16:15.
Prentvæn útgáfa
|
|
|
|
|
maí 2013  |
| S | M | Þ | M | F | F | L |
| | | 1 |
2 |
3 |
4 |
| 5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
| 12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
| 19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
| 26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
|
|
|
|