| |
Afmæli í maí. 3. Aníta 4 ára 8. Bríet Kolbrún 4 ára 28. Kristjana 3 ára
|
|
Núna: 3
Í dag: 18
Í allt: 203743
|
|
|
|
|
Matseðill 2013
Mötuneytið
Í mötuneyti Krummafótar er unnið út frá leiðbeiningum frá Lýðheilsustöð. Við samsetningu matseðla eru manneldismarkmið Manneldisráðs ásamt fæðuhringnum höfð til hliðsjónar.
Leitast er við að sameina hollustu, gæði og vinsældir fæðunnar út frá þörfum barnanna. Reynt verður að haga hráefnisvali og matargerð þannig að magn fitu, próteina, sykurs og annarra kolvetna sé í samræmi við manneldismarkmið. Lögð er áhersla á að nota fitu, salt og sykur sparlega. Einnig að nota unnar matvörur ekki oft og velja þá þær sem innihalda sem minnsta fitu og salt. Saltan og reyktan mat er æskilegt að hafa sjaldan í matinn. Leitast verður við að hafa fisk í um 40% máltíða og bjóða upp á grænmeti og ávexti daglega. Einnig að nota grófar kornvörur og olíu og léttmjólk til matargerðar. Auk þessa er æskilegt að ofnsteikja frekar en pönnusteikja eða djúpsteikja og gæta þess að nota fitu sparlega í sósugerð.
*Morgunmatur er í boði kl. 8 – 8:30 Boðið er uppá morgunkorn, súrmjólk og nýmjólk
*Í hádegisverð er boðið upp á hollan, einfaldan og vel samsettan mat þar sem hlutföll orkuefna er í samræmi við manneldismarkmið.
*Í síðdegishressingu er boðið upp á gróft brauð, hrökkbrauð, álegg, ost, grænmeti, ávexti og til tilbreytingar fá börnin stundum eitthvað sætabrauð eða kakó, því þau þurfa líka fjölbreytni.
Prentvæn útgáfa
|
|
|
|
|
maí 2013  |
| S | M | Þ | M | F | F | L |
| | | 1 |
2 |
3 |
4 |
| 5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
| 12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
| 19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
| 26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
|
|
|
|