Skólalífið 
    Dagatal 2013
 Daglega starfið
 Skóladagatalið
 Matseðill 2013
 Gullkornin
 Fólkið í skólanum 
   Starfsfólkið
Árgangur 2006
Árgangur 2007
Árgangur 2008
Árgangur 2009
Árgangur 2010
Árgangur 2011
Fræðslunefndin

Afmæli í maí.

3. Aníta 4 ára
8. Bríet Kolbrún 4 ára
28. Kristjana 3 ára
 Skólinn 
    Skólastefna Grýtubakkahrepps
 VIÐBRAGÐSÁÆTLUN vegna inflúensu
 Foreldrahandbókin
 Sagan
 Lýðheilsan
 Grænfáninn
 Foreldrafélagið
 Umsóknareyðublaðið
 Skráning og innritun
 Áhugaverðar vefsíður 
    Vegna influensu
 Á svæðinu
 Skólar
 Fræðsla
 Heimsóknir á síðuna 
  Núna: 2
  Í dag: 64
  Í allt: 203858

Grænfáninn

    Á grænni grein

    Krummafótur er skóli á grænni grein.
    Skólar á grænni grein er alþjóðlegt verkefni til að auka umhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu í skólum. Þeir skólar sem vilja komast á græna grein í umhverfismálum leitast við að stíga sjö skref. Þegar því marki er náð fá skólarnir leyfi til að flagga Grænfánanum næstu tvö ár en sú viðurkenning fæst endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi. Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Skrefin sjö eru ákveðin verkefni sem efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverfismál. Verkefnin eru bæði til kennslu í bekk og til að bæta daglegan rekstur skóla. Þau auka þekkingu nemenda og skólafólks og styrkja grunn að því að tekin sé ábyrg afstaða og innleiddar raunhæfar aðgerðir í umhverfismálum skóla. Jafnframt sýnir reynslan í Evrópu að skólar sem taka þátt í verkefninu geta sparað talsvert í rekstri.

    Skrefin 7 sem uppfylla þarf eru:

    1. Umhverfisnefnd. Umhverfisnefnd starfar við skólann og skipuleggur og stýrir verkefninu. Í nefndinni sitja fulltrúar nemenda, kennara, ræstingafólks, umsjónarfólks, foreldra og stjórnenda skólans. Nefndin á að starfa samkvæmt lýðræðislegum leikreglum og nemendur eiga að hafa þar mikið vægi. Mikilvægt er að nefndin haldi reglulega fundi, þar séu skráðar fundargerðir og séð til þess að nemendum sé leiðbeint um hlutverk sitt sem fulltrúar samnemenda sinna við stjórnun skólans hvað umhverfisstefnu varðar. Þannig gegnir umhverfisnefndin mikilvægu hlutverki í kennslu í lýðræðislegum vinnubrögðum og lífsleikni.

    2. Mat á stöðu umhverfismála. Meta skal stöðu umhverfismála í skólanum t.d. með aðstoð sérstaks gátlista. Matið á að ná til fjölmargra þátta. Nauðsynlegt er að sem flestir nemendur taki þátt matinu.

    3. Áætlun um aðgerðir og markmið. Þær upplýsingar sem matið veitir eru notaðar til að gera áætlun um aðgerðir og forgangsraða þeim í samræmi við raunhæf markmið um umbætur í umhverfismálum skólans.

    4. Eftirlit og endurmat. Stöðugt eftirlit og endurmat á að tryggja að settum markmiðum sé náð, þau viðurkennd og þeim fagnað og ný markmið sett. Þessi þáttur á einnig að tryggja stöðuga umhverfismenntun í skólanum.

    5. Námsefnisgerð og verkefni. Flestir nemendur fá markvisst nám í samræmi við þemun t.d. orku, vatn og úrgang. Allur skólinn tekur mið af verkefninu t.d. með því að spara vatn, flokka úrgang og minnka rusl. Byggja skal á námsskrá eftir því sem við á og bæta viðeigandi þáttum inn í skólanámskrá í samræmi við umhverfisstefnu.

    6. Að upplýsa og fá aðra með. Skóli með umhverfisstefnu hefur áhrif út á við, á sveitarstjórnir, fyrirtæki og samfélag í samræmi við Staðardagskrá 21. Skólarnir eru hvattir til að tengjast öðrum stofnunum til að læra af reynslu þeirra og sérþekkingu. Skólarnir eru einnig hvattir til að hafa samfélagið umhverfis í huga við gerð markmiða. Alls kyns opnar sýningar á verkum nemenda og kynningar í skólanum eða í fjölmiðlum upplýsa samfélagið um framgang verkefnisins.

    7. Umhverfissáttmáli. Skólanum er settur umhverfissáttmáli sem lýsir í stuttu máli markmiðum skólans og nemenda. Mikilvægt er að sáttmálinn sé unninn í samvinnu allra sem að skólanum standa og að hann sé vel kynntur innan skólans og utan.

    Þegar skrefin sjö hafa verið stigin getur skóli sótt um að fá Grænfánann.

    Þegar fáninn blaktir við hún er haldið áfram. Nýtt umhverfisráð er kosið sem setur sér ný markmið og keppist við til að skólinn fái Grænfánann endurnýjaðan eftir tvö ár. Undirbúningur þessa verkefnis hefur verið í gangi síðan við opnuðum á Naustatjörn. Við höfum verið að aðlaga okkur að endurvinnslu, koma upp aðstöðu undir pappír, pappa, áldósir, gler og batterí. Við teljum okkur nú tilbúin til að takast á við verkefnið af fullum hug.

    Markmið verkefnisins er að:
    • Bæta umhverfi skólans, minnka úrgang og notkun á vatni og orku.
    • Efla samfélagskennd innan skólans.
    • Auka umhverfisvitund með menntun og verkefnum innan kennslustofu og utan.
    • Styrkja lýðræðisleg vinnubrögð við stjórnun skólans þegar teknar eru ákvarðanir sem varða nemendur.
    • Veita nemendum menntun og færni til að takast á við umhverfismál.
    • Efla alþjóðlega samkennd og tungumálakunnáttu.
    • Tengja skólann við samfélag sitt, fyrirtæki og almenning.

    Landvernd

    Grænfánaverkefninu á Íslandi er stýrt af Landvernd sem er aðili að alþjóðlegu samtökunum FEE. Stýrihópur um Grænfána er Landvernd til fulltingis um allt sem viðkemur verkefninu.

    Upphafið

    Sumarið 2000 gerðist Landvernd aðili að samtökunum Foundation for Environmental Education in Europe (FEEE). Síðan hafa samtökin gerst alþjóðleg og stytt nafn sitt í samræmi við það og nota skammstöfunina FEE. Samtökin sjá um fjögur mismunandi umhverfisverkefni og er Grænfáninn eitt af þeim.
    Haustið 2000 skrifaði Landvernd nokkrum stofnunum og aðilum og boðaði til vinnufundar í þeim tilgangi að ræða og meta hvort Grænfáninn félli að þörfum íslenskra skóla og ef svo væri að setja þá fram tillögur um framhald vinnunnar. Hópurinn hélt tvo fundi í október og nóvember og niðurstaða hans var að sett yrði á laggirnar tilraunaverkefni um Grænfánann til tveggja ára. Það hæfist með því að senda öllum grunnskólum á landinu lýsingu á verkefninu og óska eftir umsóknum þeirra sem vildu taka þátt frá byrjun. Gert var ráð fyrir að fara af stað með um fimm skóla. Hópurinn gekk einnig frá framkvæmda- og fjárhagsáætlun til tveggja ára.
    Á útmánuðum 2001 var öllum grunnskólum á landinu sent kynningarbréf um Grænfánann og óskað eftir að áhugasamir sæktu um þátttöku og í maí stofnaði Landvernd sérstakan stýrihóp um verkefnið og réð verkefnisstjóra. Tólf skólar sóttu formlega um að taka þátt frá byrjun í verkefninu á Íslandi. Niðurstaða stýrihóps var að svara þeim öllum jákvætt.
    Strax vorið 2002 voru þrír fyrstu Grænfánarnir dregnir að húni á Íslandi.

    Þessar upplýsingar eru fengnar af síðu landverndar: http://www.landvernd.is

    Prentvæn útgáfa

     Fréttirnar 
        Úr skólalífinu
    Krummafótur myndir
     Söngvar 
        Vorið og sumarið
     Haustið og veturinn
     Dýrin
     Jólin
     Allt hitt
     Lög sem tengjast sjónum
    apríl 2013  maí 2013  júní 2013
    SMÞMFFL
       1 2 3 4
    5 6 7 8 9 10 11
    12 13 14 15 16 17 18
    19 20 21 22 23 24 25
    26 27 28 29 30 31  
     Plönturnar á Íslandi 
    Blágresi
    phpVefari 2004 - midlari@midlari.is - www.midlari.is