| |
Afmæli í maí. 3. Aníta 4 ára 8. Bríet Kolbrún 4 ára 28. Kristjana 3 ára
|
|
Núna: 2
Í dag: 29
Í allt: 203990
|
|
|
|
Úr skólalÃfinu | 03.02.13, 16:37 Dagur leikskólans.
Dagur leikskólans verður nú haldinn hátíðlegur í sjötta sinn, miðvikudaginn 6. febrúar en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands Íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólastarf, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og kynna starfið út á við.
Í tilefni dagsins ætlum við í Krummafæti að hafa opið hús og viljum bjóða foreldrum og öllum velunnurum að koma í heimsókn til okkar og fylgjast með daglega starfinu okkar sem er bæði fjölbreytt og skemmtilegt. Það er við hæfi á þessum degi að að taka í notkun nýbygginguna okkar "Stórasvæði" sem er stórkostleg viðbót fyrir alla þætti starfsemi okkar.
Velkomin í Krummafót 6. febrúar og að sjálfsögðu verður rjúkandi kaffi og ilmandi kruðerí á boðstólum :) |
03.01.13, 11:45 Til hamingju Selma Lind :) 2013
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla!
Við leggjum af stað í nýtt ár full af bjartsýni og jákvæðni. Og með alveg fullt af snjó! Að vísu finnst okkur flestum snjórinn bara uppspretta skemmtilegheita og getum unað okkur lengi að leik í honum. Bara að það verði ekki þessir umhleypingar með bleytu og vosbúð... það er leiðinlegra.
Benni og piltar vinna hörðum höndum í Stórasvæði og brátt getum við tekið það í notkun... og það verður spennandi.
Afmælisbarn dagsins er hún Selma Lind sem varð 3 ára á nýársdag. Til hamingju elsku vinkona og bjarta framtíð. |
21.12.12, 13:43 :) |
14.12.12, 13:38 Aðventa
Tíminn líður svo hratt að það verður komið vor áður en við vitum af!
Það er alltaf nóg að gera hjá okkur hér í leikskólanum og gengur lífið bara nokkuð vel. Desember er hálfnaður, styttist til jóla og ekki nema 18 dagar þangað til nýtt ár gengur í garð. Og á nýja árinu tökum við nýbygginguna okkar í notkun... og hlökkum mikið til þess. Benni og félagar vinna hér hörðum höndum á hverjum degi (með tilheyrandi hávaða og rykmekki...) og alltaf færist verkið nær því að verða tilbúið....
Í desember reynum við að hafa dagana eins rólega og við framast getum en það er spenna í loftinu og ákveðin tilhlökkun sem við verðum alveg vör við.
Við minnum á Litlu jólin okkar næsta fimmtudag 20. desember,
kl. 14:00. |
31.10.12, 13:52 "Nú er hann kominn...."
Síðasti dagur októbermánaðar, 1. nóvember á morgun og 54 dagar til jóla... ef einhver er að telja :)
Og fyrsti alvöru snjódagurinn var í dag. Fyrir krakkana hér var það algjör himnasending, bókstaflega, og þau réðu sér varla fyrir kæti. Já, það er gott að vera ungur og leika sér og finna gleðina í öllu, snjór eða ekki snjór.
Hér má sjá myndir myndir frá því í morgun.
Í nóvember er feðradagurinn.... sunnudaginn 11... og af því tilefni ætlum við að bjóða pöbbunum í morgunkaffi mánudaginn 12. Og ef pabbar komast ekki þá mega afar eða frændur vera staðgenglar :)
Við minnum á SKIPULAGSDAGINN sem er föstudaginn 9. nóvember nk. og þann dag er leikskólinn lokaður.
| 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 59 60 61 62 63 64 65 66 67 68 69 70 71 72 73 Næsta >> Prentvæn útgáfa
|
|
|
|
|
maí 2013  |
| S | M | Þ | M | F | F | L |
| | | 1 |
2 |
3 |
4 |
| 5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
| 12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
| 19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
| 26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
|
|
|
|