Velkomin aftur í leikskólann! 02.08.06, 09:11 Í sumar hafa orðið breytingar á starfsmannamálum hér í Krummafæti.
Ráðin hafði verið nýr leikskólastjóri til eins árs, Sonja Kro, í stað Regínu.
Sonja dró umsóknina til baka vegna fjölgunar á mannkyninu.
Ráðið hefur verið aftur í stöðuna, og er það Hólmfríður Hermannsdóttir sem er sú heppna. Hún mun hefja störf þann 8. ágúst og Regína hættir þann 10.
Soffía Daðadóttir hefur ákveðið að færa sig yfir á Grenilund og Sólveig Jónsdóttir
kemur til baka í kringum næstu mánaðarmót. Hólmfríður minnkar við sig vinnu í 70%, Jóna og Ásta verða áfram á sínum stað.
Að lokum í bili......
Mig langar til að óska nýjum leikskólastjóra velfarnaðar í starfi, sem og öðru starfsfólki
og vona að næsta ár verði farsælt hér í Krummafæti!
Ég hef fengið vinnu í Ingunnarskóla í Grafarholti í Reykjavík
og kem til með að kenna þar 3-4 bekk.
Hjartans þakkir fyrir öll árin og sjáumst hress!!
Bestu kveðjur Regína Ómarsdóttir
P.s. Ef einhver er að fara til Reykjavíkur með fullt af plássi í bílnum,
þá er ég með nokkra kassa sem vantar far;)....
|