Úr skólalÃÂÂÂfinu 18.02.09, 14:41 :) :) Andlitsmálun
Það var andlitsmálun hjá okkur í dag.
Það sáust hin ýmsu andlit þegar líða tók á morguninn, nokkrar prinsessur, nokkrir spidermenn, turtleskallar og kattardýr.
Það er alltaf gaman að breyta um hlutverk, líta öðruvísi út og haga sér svo í samræmi við það. Eða svona að nokkru leyti :) Hér eru myndir sem teknar voru í dag.
Við minnum á mömmukaffið á föstudagsmorguninn en þá er öllum mömmunum boðið í kaffi og meðlæti. Frá 8:00 - 9:30. |