Úr skólalífinu 20.08.10, 15:06 Ólína Helga jr. 4 ára Afmæli dagsins!
Ólína Helga er afmælisbarn dagsins og er orðin 4 ára. Innilega til hamingju með daginn kæra vinkona og megi framtíðin verða þér björt og heillarík.
Eftir hádegið í gær var farin berjaferð upp í Reiðsundið þar sem bláber voru tínd í dollur og nesti borðað í guðsgrænni náttúrunni. Frábær ferð og í dag bökuðu krakkarnir bláberjapæ og fengum við að sjálfsögðu öll að smakka á góðgætinu. -það gekk nú misjafnlega vel í fólkið... sumum finnst miklu betra að borða berin beint af lynginu :)
Það má sjá myndir úr berjaferðinni og fleiri skemmtilegar myndir á MYNDASÍÐUNNI OKKAR.
Það var hjóladagur á miðvikudaginn og mættu allir með einhverskonar hjól þann daginn. Skemmtilegur dagur og alltaf gaman að fá að prófa hvert hjá öðru. Í dag er Ásdís Hanna að hætta hjá okkur og er að fara til Reykjavíkur þar sem hún sest á skólabekk til að læra leikskólakennarafræði. Takk fyrir sumarið og gangi þér vel :)
Góða helgi og takk fyrir vikuna :):) |