Landbúnaðarnefnd

16.06.2014 13:10

Fundur Landbúnaðarnefndar
Haldinn á Grund 12. júní, kl. 18.00


Fundur Landbúnaðarnefndar Grýtubakkahrepps.  Mætt Ásta F. Flosadóttir, Guðjón Þórsteinsson og Þórarinn Pétursson.  


Dagskrá:

1. Opnun afréttar og ógirtra heimalanda.  Landbúnaðarnefnd leggur til við sveitarstjórn að heimilt verði að sleppa fé í ógirt heimalönd og á afrétt nú þegar.  Það er mat nefndarinnar að menn hafi samráð sín á milli um sleppingar og taki mið af gróðri og veðurfari áður en fé er sleppt.

2. Hrossabeit.  Lagt er til að hrossum sé ekki sleppt á afrétt fyrr en 10. júlí.  Ennfremur að hrossum verði ekki sleppt á afrétt fyrr en búið er að girða fyrir ágang hrossana suður í sveit.

3. Fjárréttin.  Nú er komið á áætlun fyrir árið 2016 að fara í byggingu nýrrar fjárréttar.  Brýnt er að farið verði að huga að réttarstæði og plássi fyrir næturhólf/safnhólf við réttina.  Lagt er til að farið verði að vinna í þessum málum sem fyrst.

4. Brýr.  Huga þarf að ástandi brúa í Fjörðum.  Nauðsynlegt er að brúa yfir Grenjá um leið og hægt er.



Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.
Ásta  F. Flosadóttir ritaði fundargerð.