Hraðakstur + börn = slysahætta

Á Grenivík er 30 km. hámarkshraði.  Borið hefur á að þau mörk hafi verið gróflega brotin undanfarið.  Einnig tíðkast í of miklum mæli að ung börn noti götur sem leiksvæði.  Skorað er á hlutaðeigandi að bæta ráð sitt áður en alvarlegt slys verður.  Lögreglan hefur jafnframt verið beðin að koma í óreglulegar heimsóknir til hraðamælinga í þorpinu.