Mánudagur 6. september
Ávarp sveitarstjóra
Um sveitarfélagið
Stofnanir
Nefndir og ráð
Fundargerðir
Gjaldskrár
Samþykktir og reglur
Ársreikningar
Eyðublöð
Ferðaþjónusta
Gisting
Veitingar
Afþreying
Ágúst 2010

Nú líður að því að skóli hefjist og vonandi koma allir kátir og glaðir undan sumrinu. Tveir nýir kennarar hafa verið ráðnir við Grenivíkurskóla eða þeir Þorgeir Finnsson og Stefán Guðnason en Stefán kemur til með að kenna íþróttir.  Eru þeir báðir boðnir velkomnir til starfa. Guðrún Árnadóttir og Edda Björnsdóttir eru í barnsburðarleyfi og Edda Línberg er farin til annarra starfa.

Allir pistlar
Morgunblaðið
Vísir
Svæðisfréttir RÚV
Veðurspá
Færð á vegum
Innanlandsflug
Símaskrá
Senda SMS
Leit á vefnum
 
Messað á Þönglabakka
þriðjudagur, 27 júlí 2010

tonglabakki_2010Messað var á Þönglabakka í Þorgeirsfirði sl. sunnudag, en þar er gamall kirkjustaður. Byggð lagðist af í Fjörðum árið 1944 og þá var kirkjan á Þönglabakka lögð af. Þetta er í þriðja sinn sem efnt er til útimessu á Þönglabakka til að minnast búsetu og kristnihalds þar. Um hundrað manns sótti útimessuna í blíðskaparveðri. Flestir komu fótgangandi úr Hvalvatnsfirði en sumir komu sjóleiðina. Sr. Bolli Pétur Bollason í Laufási og sr. Kristján Valur Ingólfsson þjónuðu. Benedikt Kristjánsson söng einsöng. Að athöfn lokinni bauð ferðafélagið Fjörðungur upp á kaffi og nýbakaðar lummur við skálann.

 

Sumarfrí á skrifstofu
mánudagur, 12 júlí 2010

grytubakkahreppurSkrifstofa Grýtubakkahrepps verður lokuð frá 12. júlí til 23. júlí nk. (báðir dagar meðtaldir) vegna sumarleyfa.  Opnum aftur mánudaginn 26. júlí kl. 10:00.
Í neyðartilfellum má hafa samband við sveitarstjóra í síma 864-4504.

                                                 Sveitarstjóri.

Íslenski safnadagurinn
fimmtudagur, 08 júlí 2010

hlidarendiÍslenski safnadagurinn í Grýtubakkahreppi sunnudaginn 11. júlí
-fyrir ömmur, afa, mömmur, pabba, börnin, frænkur og frændur-

Gamli bærinn í Laufási

Kl. 13:30 Fjölskyldustund í kirkjunni í umsjón sr. Bolla Péturs Bollasonar.
Kl. 14-16 Upplifðu lífið á 19. öld í burstabæ! Laufáshópurinn glæðir bæinn lífi. Heyskapur, mjólkurvinnsla og fróðleikur um hlunnindi í Laufási.
Kl. 09-18 Þjóðlegar veitingar úr héraði í Gamla presthúsinu

Frítt fyrir börn 15 ára og yngri
Opið daglega kl. 9-18  www.minjasafnid.is s.463 3196, 30 km frá Akureyri.

Útgerðarminjasafnið á Grenivík
Kl. 14:00 Kanntu að beita? Viltu prófa?
Kl. 15:00 Langar þig að smakka rifna þorskhausa? Kíktu í heimsókn!

Frítt fyrir börn 14 ára og yngri.
Opið daglega kl. 13-17  www.grenivik.is s.698 5610, 40 km frá Akureyri.

Húsdýragarðurinn Hléskógum
Viltu klappa kettlingum, kiðlingum og kanínum?
Komdu í heimsókn og sjáðu húsdýrin á bænum.
Opið daglega kl. 13-17 s.463 3112, 34 km frá Akureyri.

Pólarhestar
Viltu bregða þér á bak með fjölskylduna?
Hestaferðir allt frá 1 klst. til dagsferða.
www.polarhestar.is s. 463 3179, 35 km frá Akureyri.

<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 7 - 9 af 350

Gisting
Veitingar
Afþreying
 

bedid.jpg
Skoða myndasafn

Allar tilkynningar
Allir viðburðir

Grýtubakkahreppur - Sími: 463-3159 - Fax: 463-3269 - Netfang: sveitarstjori@grenivik.is