|
Heimasíða Krummafótar opnuð |
|
fimmtudagur, 01 júní 2006 |
Leikskólinn Krummafótur hefur opnað heimasíðu, slóðin er www.grenivik.is/krummafotur Þar má fylgjast með lífinu í leikskólanum og finna helstu upplýsingar um hann, t.a.m. fréttir úr skólalífinu, skóladagatalið, foreldrahandbókina, matseðla, gjaldskrána og gullkorn svo eitthvað sé nefnt. Þar má einnig sjá myndir, m.a. glænýjar myndir frá sveitarferð sem börnin fóru í Laufás í gær. Til hamingju með síðuna. |
|
Úrslit sveitarstjórnarkosninga í Grýtubakkahreppi |
|
þriðjudagur, 30 maí 2006 |
Í Grýtubakkahreppi var óbundin kosning. Á kjörskrá voru 256 einstaklingar og var kjörsókn mjög góð eða tæplega 77%. 197 atkvæði voru greidd sem skiptust jafnt milli kynja, auðir seðlar 1 og ógildir 0. Þórður Stefánsson, oddviti gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu í sveitarstjórn. Úrslitin urðu eftirfarandi: Kjörnir aðalmenn 1. Fjóla Valborg Stefánsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Lækjarvöllum 10 2. Jón Helgi Pétursson, framkvæmdastjóri, Ægissíðu 22 3. S. Jóhann Ingólfsson, bóndi, Stórasvæði 8 4. Benedikt S. Sveinsson, húsasmiður, Ártúni 5. Ásta Fönn Flosadóttir, kennari, Höfða Kjörnir varamenn 1. Jenný Jóakimsdóttir, þjónustufulltrúi, Túngötu 21 2. Margrét Ösp Stefánsdóttir, líffræðingur, Ægissíðu 34 3. Guðni Sigþórsson, verkstjóri, Túngötu 19 4. Heimir Ásgeirsson, framkvæmdastjóri, Túngötu 25 5. Ármann Einarsson, húsvörður, Ægissíðu 21 Ásta Fönn og Jenný Jóakimsdóttir hlutu jafnmörg atkvæði í 5. sætið og varð því að draga um sætið. Nýkjörnum sveitarstjórnarmönnum er óskað til hamingju með kjörið. |
|
Bíllaus dagur í Grýtubakkahreppi |
|
þriðjudagur, 30 maí 2006 |
Nú stendur yfir þemavika (umhverfisvernd) í Grenivíkurskóla og af því tilefni er mælst til að miðvikudagurinn 31. maí nk. verði bíllaus dagur í Grýtubakkahreppi. Nemendur vinna að ákveðnum umhverfisverkefnum eins og t.d. endurvinnslu og gróðursetningu. Grenivíkurskóli er þátttakandi í svokölluðu Grænfánaverkefni sem miðar m.a. að því að auka umhverfismennt og samfélagskennd. Íbúar Grýtubakkahrepps eru hvattir til að taka virkan þátt í þessu verkefni og nota bílinn sem minnst, síðasta skóladaginn miðvikudaginn 31. maí. |
|
<< Byrjun < Fyrri 101 102 103 104 105 106 107 108 109 110 Næsta > Endir >>
|
| Niðurstöður 307 - 309 af 350 |