|
Vígsla nýs reiðvegar í Grýtubakkahreppi |
|
þriðjudagur, 22 ágúst 2006 |
Fimmtudaginn 17. ágúst sl. var nýr reiðvegur vígður í Grýtubakkahreppi. Vegurinn er 2,1 km langur og liggur austan í Höfðanum. Fjöldi hestamanna og gesta safnaðist saman við Ósbrú þar sem vegurinn var formlega opnaður. Að því búnu riðu hestamenn veginn og enduðu í hesthúsahverfinu á Grenivík þar sem boðið var upp á veitingar. Vegurinn liggur í mjög fallegu umhverfi og er hugsaður sem alhliða útivistarvegur. Víst er að tilkoma hans bætir aðstöðu hestamanna á Grenivík til muna og umferð ríðandi fólks um Víkina kemur til með að minnka. Á meðfylgjandi mynd má sjá Sigurð Oddsson frá Vegagerð ríkisins og Guðnýju Sverrisdóttur sveitarstjóra klippa á borðann. |
|
Köld en góð Grenivíkurgleði |
|
fimmtudagur, 10 ágúst 2006 |
Síðastliðinn sunnudag var hin árlega Grenivíkurgleði haldin á Grenivík. Þrátt fyrir kulda og næðing framan af degi var fjölmennt. Fjörið byrjaði kl. 14:00 á því að grillaðar voru pylsur fyrir börnin. Leiktæki voru á staðnum og grenvíska hljómsveitin The Earthen Dabchicks spilaði. Sjálf grillveislan byrjaði svo kl. 18:00. Eins og á öllum góðum hátíðum var brekkusöngur og hápunktur gleðinnar var stórkostleg flugeldasýning. Hljómsveitin Úlrik hélt svo uppi fjörinu með útiballi fram eftir nóttu. |
|
miðvikudagur, 02 ágúst 2006 |
|
Hið árlega Grenivíkurgrill verður haldið á Miðgörðum nú um verslunarmannahelgina, þ.e. sunnudaginn 6. ágúst nk. Leiktæki verða á staðnum fyrir börnin, hljómsveitir stíga á stokk, brekkusöngur o.fl. Nánari upplýsingar um grillið er að finna hér á síðunni undir viðburðir. |
|
<< Byrjun < Fyrri 101 102 103 104 105 106 107 108 109 110 Næsta > Endir >>
|
| Niðurstöður 301 - 303 af 350 |