Mánudagur 6. september
Ávarp sveitarstjóra
Um sveitarfélagið
Stofnanir
Nefndir og ráð
Fundargerðir
Gjaldskrár
Samþykktir og reglur
Ársreikningar
Eyðublöð
Ferðaþjónusta
Gisting
Veitingar
Afþreying
Ágúst 2010

Nú líður að því að skóli hefjist og vonandi koma allir kátir og glaðir undan sumrinu. Tveir nýir kennarar hafa verið ráðnir við Grenivíkurskóla eða þeir Þorgeir Finnsson og Stefán Guðnason en Stefán kemur til með að kenna íþróttir.  Eru þeir báðir boðnir velkomnir til starfa. Guðrún Árnadóttir og Edda Björnsdóttir eru í barnsburðarleyfi og Edda Línberg er farin til annarra starfa.

Allir pistlar
Morgunblaðið
Vísir
Svæðisfréttir RÚV
Veðurspá
Færð á vegum
Innanlandsflug
Símaskrá
Senda SMS
Leit á vefnum
 
Grenivíkurgleðin haldin í sjöunda sinn
miðvikudagur, 11 ágúst 2010

gledi_2009Grenivíkurgleðin verður haldin í sjöunda sinn 13. og 14. ágúst nk. Gleðin verður sett  á föstudagskvöld á tjaldstæðinu þar sem hún fer fram. Líkt og undanfarin ár verður mikið um að vera. Lilli klifurmús og Mikki refur kíkja í heimsókn og heilsa upp á börnin, töframaðurinn Einar einstaki verður með töfrabrögð, haldin verður söngkeppni og barnaball, hljómsveitin Hundur í óskilum treður upp með söng og glensi, gamaldags skúrball verður haldið í Útgerðarminjasafninu, Sögufélag Grýtubakkahrepps verður með ljósmyndasýninguna „Horfin hús" í Grenivíkurskóla, tendraður verður varðeldur, lautarsöngur, flugeldasýning og hljómsveitin Big Band Benna Sig. mun halda uppi stuðinu á tjaldstæðinu bæði kvöldin. Kynnir Grenivíkurgleðinnar verður Óðinn Valsson og veislustjórn í verður í höndum Góa og Jóa. Fólk er minnt á að skreyta híbýli sín með appelsínugulu og flagga fána gleðinnar. Dagskrá Grenivíkurgleðinnar er að finna hér á síðunni undir viðburðir.

Kvöldgöngur á miðvikudagskvöldum
miðvikudagur, 11 ágúst 2010

finnastadagangaÍ sumar hafa verið farnar kvöldgöngur á miðvikudagskvöldum í sveitarfélaginu í fylgd ýmissa sögumanna. Góð þátttaka hefur verið og göngufólk heppið með veður. Gengið var um Grundarland, í Kvígudali og inn Kljáströnd, um Finnastaðaland, Hólsland, Laufásland, inn Gljúfurárgil og upp á Selshrygg. Í kvöld á að ganga á Laufáshnjúk í fylgd Hafsteins Sigfússonar. Lagt verður af stað kl. 19:00 frá Jónsabúð. Miðvikudagskvöldið 18. ágúst verður gengið um Skarðsland en þar verður Jóhann Skírnisson sögumaður. Lokaganga sumarsins verður síðan laugardaginn 21. ágúst en þá verður gengið frá Grímsnesi út í Látur og komið til baka á sunnudag. Nánar um dagskrá gönguferðanna er að finna hér á síðunni undir viðburðir.

 

Könnun á launum í vinnuskólum
fimmtudagur, 05 ágúst 2010

img_1150Eining-Iðja gerði á dögunum könnun á launum hjá vinnuskólum í sveitarfélögum í Eyjafirði. Einungis var kauptaxtinn borinn saman hjá 14-16 ára unglingum, ekki tímafjöldinn. Samkvæmt könnuninni greiðir Grýtubakkahreppur hæsta taxtann á svæðinu. Sveitarfélögin ákveða sjálf laun unglinganna því samkvæmt túlkun Launanefndar sveitarfélaga falla vinnuskólar sveitarfélaga ekki undir kjarasamninga stéttarfélaga. Könnunina er að finna á heimasíðu Einingar-Iðju, www.ein.is.

 

<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 4 - 6 af 350

Gisting
Veitingar
Afþreying
 

grill28.jpg
Skoða myndasafn

Allar tilkynningar
Allir viðburðir

Grýtubakkahreppur - Sími: 463-3159 - Fax: 463-3269 - Netfang: sveitarstjori@grenivik.is