Mánudagur 6. september
Ávarp sveitarstjóra
Um sveitarfélagið
Stofnanir
Nefndir og ráð
Fundargerðir
Gjaldskrár
Samþykktir og reglur
Ársreikningar
Eyðublöð
Ferðaþjónusta
Gisting
Veitingar
Afþreying
Ágúst 2010

Nú líður að því að skóli hefjist og vonandi koma allir kátir og glaðir undan sumrinu. Tveir nýir kennarar hafa verið ráðnir við Grenivíkurskóla eða þeir Þorgeir Finnsson og Stefán Guðnason en Stefán kemur til með að kenna íþróttir.  Eru þeir báðir boðnir velkomnir til starfa. Guðrún Árnadóttir og Edda Björnsdóttir eru í barnsburðarleyfi og Edda Línberg er farin til annarra starfa.

Allir pistlar
Morgunblaðið
Vísir
Svæðisfréttir RÚV
Veðurspá
Færð á vegum
Innanlandsflug
Símaskrá
Senda SMS
Leit á vefnum
 
Til kjósenda í Grýtubakkahreppi og Þingeyjarsveit
fimmtudagur, 27 maí 2010

HVAÐ Á SKAGINN AÐ HEITA?

Við sveitarstjórnarkosningar nk. laugardag gefst kjósendum kostur á að greiða atkvæði um nafn á skagann milli Eyjafjarðar og Skjálfanda. Úrslitin verða ráðgefandi fyrir komandi sveitarstjórnir sem taka ákvörðun um áframhaldið.
Alls bárust sameiginlegri nafnanefnd 36 tillögur að nafni. Nefndin valdi þau fjögur nöfn sem hér fara á eftir og verða á atkvæðaseðlinum. Auk þeirra verður auð lína fyrir þá sem vilja koma sinni eigin tillögu á framfæri og einnig möguleiki á að kjósa óbreytt ástand og áframhaldandi nafnleysi.

FLATEYJARSKAGI
Nafnið var búið til af Helga Hallgrímssyni náttúrufræðingi 1976 til að nota á rit um gróður á skaganum, Flóra Flateyjarskaga, sem Náttúrugripasafnið á Akureyri gaf út. Hefur nafnið nokkuð verið notað síðan, mest af náttúrufræðingum sem þurfa að geta talað um svæðið í einu lagi.  
Nafnið er sótt til Flateyjar, Flateyjardals og Flateyjardalsheiðar.
 
 
GJÖGRASKAGI
Nafnið er gamalt og var til í munni gamalla sjómanna þótt það hafi ekki náð almennri notkun. Finnst á einum stað í rituðu máli, í grein um fiskimið Eyfirðinga í Súlum 3, öðru hefti 1972.
Gjögurinn er stundum nefndur útvörður skagans í norðri og er framlengdur neðansjávar í Gjögrahrygg. Ótal örnefni draga nafn af honum s.s. Gjögurtá, Gjögurskál, Gjögrakolla, Gjögravogur o.fl.
 
 
NÁTTFARASKAGI
Þegar Garðar Svavarsson yfirgaf landið varð einn úr hans föruneyti eftir með þræl og ambátt. Hann hét Náttfari og settist að í Náttfaravíkum. Ef sagan er sönn, sem Þingeyingar hafa aldrei dregið í efa, hefur Náttfari ekki bara verið fyrsti landnámsmaður skagans heldur fyrstur norrænna manna til að taka sér bólfestu á landinu.  Að nefna skagann eftir honum væri þess vegna ekki út í hött.  
 
 
REYNISNES
Nafnið er að finna í Landnámu sem segir að austurmörk landnáms Helga magra hafi verið við Reynisnes. Fræðimönnum kemur ekki saman um hvar það var, sumir telja að Reynisnes sé það sama og nú heitir Gjögurtá. Aðrir telja nafnið ná yfir allt nesið milli Eyjafjarðar og Skjálfanda.
Nafnið er væntanlega dregið af trjátegundinni sem enn vex á nokkrum stöðum á Látraströnd og víðar á skaganum.
 
 
Nafnanefnd Grýtubakkahrepps og Þingeyjarsveitar:
Arnór Benónýsson, Björn Ingólfsson, Helga A. Erlingsdóttir,
Heimir Ásgeirsson, Hlöðver P. Hlöðversson, Jenný Jóakimsdóttir.

Bíllaus dagur 27. maí
miðvikudagur, 26 maí 2010

grytubakkahreppurGrýtubakkahreppur er þátttakandi í verkefninu Allt hefur áhrif - einkum við sjálf. Meðal markmiða verkefnisins er að stuðla að heilbrigðum lífsháttum barna, unglinga og fjölskyldna þeirra. Fimmtudaginn 27. maí verður bíllaus dagur í Grýtubakkahreppi. Þann dag eru allir hvattir til að ganga, hjóla eða hlaupa á milli staða. Gefum bílnum frí þennan dag!

Vígsla á uppstigningardegi
miðvikudagur, 26 maí 2010

altarisdukur2Uppstigningardagur var haldinn hátíðlegur með guðsþjónustu á Grenilundi. Í upphafi guðsþjónustu var altarisdúkur eftir Elínu Jónsdóttur, móður sr.Péturs Þórarinssonar, vígður. Dúkinn gaf Elín Grenilundi til minningar um sr. Pétur. Aðalheiður Jóhannsdóttir djákni bauð fólk velkomið og minntist sr. Péturs og sóknarprestur sr. Bolli Pétur Bollason helgaði dúkinn þjónustunni við Guð og söfnuð hans. Kirkjukórinn söng undir stjórn Bjargar Sigurbjörnsdóttur organista. Viðstaddir þáðu myndarlegar kaffiveitingar að lokinni athöfn.

 

<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 25 - 27 af 350

Gisting
Veitingar
Afþreying
 

nes.jpg
Skoða myndasafn

Allar tilkynningar
Allir viðburðir

Grýtubakkahreppur - Sími: 463-3159 - Fax: 463-3269 - Netfang: sveitarstjori@grenivik.is