Mánudagur 6. september
Ávarp sveitarstjóra
Um sveitarfélagið
Stofnanir
Nefndir og ráð
Fundargerðir
Gjaldskrár
Samþykktir og reglur
Ársreikningar
Eyðublöð
Ferðaþjónusta
Gisting
Veitingar
Afþreying
Ágúst 2010

Nú líður að því að skóli hefjist og vonandi koma allir kátir og glaðir undan sumrinu. Tveir nýir kennarar hafa verið ráðnir við Grenivíkurskóla eða þeir Þorgeir Finnsson og Stefán Guðnason en Stefán kemur til með að kenna íþróttir.  Eru þeir báðir boðnir velkomnir til starfa. Guðrún Árnadóttir og Edda Björnsdóttir eru í barnsburðarleyfi og Edda Línberg er farin til annarra starfa.

Allir pistlar
Morgunblaðið
Vísir
Svæðisfréttir RÚV
Veðurspá
Færð á vegum
Innanlandsflug
Símaskrá
Senda SMS
Leit á vefnum
 
Sigur á heimavelli
mánudagur, 31 maí 2010

magnilogoNú er boltinn farinn að rúlla að nýju og fyrsti heimaleikur Magna í Íslandsmótinu fór fram á Grenivíkurvelli föstudagskvöldið 28. maí sl. er Einherji frá Vopnafirði sótti Magna heim. Leikurinn endaði með sigri heimamanna 2-1. Jafnt var á með liðum í hálfleik 0-0 en strax í upphafi síðari hálfleiks skoraði Víðir Örn með skalla fyrir Magna. Á 63. mín fékk Zsolt Orosz leikmaður Magna að líta rauða spjaldið og léku því Magnamenn einum færri það sem eftir lifði leiks. Á 87. mínútu leiksins skoraði Bjarni Óskar Þorsteinsson fyrir Einherja og jafnaði leikinn. Alveg undir blálok leiksins í uppbótartíma skoraði Lars Óli Jessen sigurmark Magna. Aðgangur var ókeypis á leikinn í boði Sparisjóðs Höfðhverfinga og lögðu margir leið sína á völlinn í mjög góðu veðri. Í fyrstu umferð deildarinnar atti Magni kappi við Dalvík/Reyni á Árskógsvelli en beið lægri hlut 2-0. Næstkomandi föstudagskvöld kl. 20:00 mun Magni leika við Draupni í Boganum á Akureyri.

  

Búið að opna Gamla bæinn í Laufási
mánudagur, 31 maí 2010

laufasDyrnar á Gamla bænum í Laufási voru opnaðar upp á gátt sunnudaginn 30. maí sl. Þennan fyrsta dag sumaropnunar var hlaðið borð af nýbökuðu bakkelsi úr héraði í gamla Presthúsinu. Leiðsögn var um Gamla bæinn þar sem meðal annars var fjallað um viðgerðir þær sem hafa staðið yfir í bænum og framhald á þeim. Í sumar má nú  sjá afrakstur viðgerða við Gamla bæinn sem fram fóru síðasta sumar. Baðstofan sem var hjartað í hverjum sveitabæ er nú tilbúin og því ánægjulegt fyrir gesti að geta gengið þar um á ný. Hús eins og Laufásbærinn þarf á stöðugu viðhaldi að halda og í sumar verður því viðgerðum haldið áfram en að þessu sinni á skála og þökum tveggja húsa. Gestum mun því gefast tækifæri til þess að fylgjast með endurbótunum um leið og þær gerast. Það er einstakt tækifæri til að fræðast um gamalt handverk! Gamli bærinn í Laufási er í umsjón Minjasafnsins á Akureyri en í eigu Þjóðminjasafns Íslands , sem stendur fyrir endurbótum á honum.
Gamli bærinn í Laufási verður opinn í sumar daglega frá kl. 9:00-18:00 til 12. september.

 

Sveitarstjórnarkosningar á laugardag
fimmtudagur, 27 maí 2010

grytubakkahreppurSveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 29. maí nk. Kosið verður í Grenivíkurskóla og hefst kjörfundur kl.11:00. Lokað verður í síðasta lagi kl. 19:00.

 

<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 22 - 24 af 350

Gisting
Veitingar
Afþreying
 

frostrosir-013.jpg
Skoða myndasafn

Allar tilkynningar
Allir viðburðir

Grýtubakkahreppur - Sími: 463-3159 - Fax: 463-3269 - Netfang: sveitarstjori@grenivik.is